Mýrasýsla

Mýrasýsla

Mýrasýsla er sýsla á Vesturlandi sem nær frá Hvítá í Borgarfirði að Hítará. Sýslan er alls 3.270 km².

Úti fyrir strönd Mýrasýslu eru ótal sker og er aðgrunnt að ströndinni. Mestur hluti sýslunnar er láglendur og kallast hann einu nafni Mýrar og ná þær allt inn að Norðurá og Gljúfurá meðfram Hvítá.

Mýrarnar eru víða illar yfirferðar, með lágum klapparholtum inn á milli. Holt þessi eru mörg hver vaxin birkikjarri. Upp af Mýrunum ganga síðan dalir inn í hálendið; helstu dalir eru Hítardalur, Hraundalur með Langavatnsdal, Norðurárdalur og Þverárhlíð austust.

Mýrasýslan öll er gróðursæl og er gróðurlendið útbreiddast á Mýrum og eru afréttir grösugir einnig. Í Mýraeldum vorið 2006 skemmdist þónokkurt gróðurlendi en líklegt er talið að það muni ná sér á einhverjum áratugum.

Áður fyrr voru átta sjálfstæðir hreppar í Mýrasýslu sem hafa nú sameinast undir nafninu Borgarbyggð.
Hvítársíðuhreppur Þverárhlíðarhreppur Norðurárdalshreppur Stafholtstungnahreppur Borgarhreppur Borgarneshreppur Álftaneshreppur Hraunhreppur Mýrasýsla