Miðneshreppur

Miðneshreppur

Miðneshreppur var stofnaður árið 1886 þegar Rosmhvalaneshreppi var skipt í tvennt eftir endilöngu nesinu.
Hélt hinn hlutinn gamla nafninu áfram en hann náði yfir byggðirnar innan megin á nesinu: Garð, Leiru og Keflavík.
Miðneshreppur fékk kaupstaðarréttindi 3. desember 1990 og nefndist upp frá því Sandgerðisbær. Sandgerðisbær (áður Miðneshreppur) er sveitarfélag á utanverðum Reykjanesskaga. Nær hann yfir alla vesturströnd Miðness (Rosmhvalaness), allt út að Garðskaga. Sandgerðishverfi er eitt af sjö hverfum Miðneshrepps/Sandgerðis og talið að sunnan frá Ósabotnum nefnast þau: Stafneshverfi, Hvalsneshverfi, Fuglavíkurhverfi, Bæjarskershverfi, Sandgerðishverfi, Flankastaðahverfi og Kirkjubólshverfi.
Við jarðamatið 1861 voru fimm býli skráð í Sandgerðishverfi: Krókskot, Landakot, Tjarnarkot, Bakkakot, auk Sandgerðisjarðar.
Bakkakot eignaðist ekki nein landréttindi , heldur var tómthús. Hin býlin urðu sjálfstæðar jarðir með hlutdeild í sameiginlegum réttindum hverfisins. Auk heiðarlandsins sem allar fjórar jarðirnar eiga sameiginlega, eru svonefnd Lönd í sameign Krókskots og Sandgerðisjarðar.

Íbúar í Sandgerði eru rúmlega 1700 og hefur verið nokkur fjölgun síðustu áratugi. Sjávarútvegur og fiskvinnsla eru helstu atvinnuvegir, einnig iðnaður, verslun og þjónusta í frekar smáum stíl.
Allgóð höfn er í Sandgerði og hafa viðamiklar hafnarframkvæmdir átt sér þar stað á seinni hluta 20. aldar.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar er innan bæjarmarka Sandgerðis. Sandgerði var upphaflega útvegsjörð í betra lagi og bjuggu þar góðbændur, sem aðallega höfðu fiskinn í sjónum að bústofni. Eins og nafnið gefur til kynna er jarðvegur þarna mjög sendinn og ekki vel fallinn til ræktunar. Sandurinn var að miklu leyti heftur með umfangsmikilli ræktun melgresis og hleðslu mikils sjóvarnargarðs á fyrri hluta 20. aldar.
Í Sandgerði er Björgunarsveitin Sigurvon, sem er fyrsta björgunarsveit sem stofnuð var á vegum Slysavarnafélags Íslands. Rekur hún björgunarbátinn Hannes Þ. Hafstein og hefur mörgum verið bjargað úr sjávarháska og komið til aðstoðar vegna slysa eða sjúkdóma á hafi úti með þessum bát.

Sandgerðisbær nær frá Garðskagatá í norðri að Ósabotnum í suðri. Kirkjustaður er á Hvalsnesi, en þar var Hallgrímur Pétursson, sálmaskáld, (1614 - 1674) fyrst prestur árin 1644 - 1651.

Sandgerðisbær var draumasveitarfélag Suðurnesja árið 2007 og var í 13. sæti yfir öll sveitarfélög á Íslandi.

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar