Hofshreppur
Hofshreppur (áður Höfðastrandarhreppur) var hreppur í Skagafjarðarsýslu, austan megin Skagafjarðar, kenndur við kirkjustaðinn Hof á Höfðaströnd.
Hinn forni verslunarstaður Hofsós var gerður að sérstökum hreppi 1. janúar 1948 en sameinaður Hofshreppi á ný 10. júní 1990, ásamt Fellshreppi þar norður af. Náði Hofshreppur þar með allt norður að Fljótavík.
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Hofshreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.
Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.
Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:
- Skráningu lokið
- Skráning í vinnslu
- Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar