Gerðahreppur
Gerðahreppur var stofnaður 15. júní 1908 við seinni uppskiptingu Rosmhvalaneshrepps. Hinn hlutinn, sem tilheyrði Keflavíkurkauptúni, sameinaðist Njarðvíkurhreppi og varð að Keflavíkurhreppi.
Sveitarfélagið Garður (áður Gerðahreppur) er sveitarfélag á nyrsta odda Reykjanesskagans, á innanverðu Miðnesi. Á það land að Sandgerði og Reykjanesbæ.
Skjaldarmerki sveitarfélagsins er mynd af vitunum tveimur á Garðskaga.
Á Garðskaga var reist fyrsta leiðarmerki fyrir sæfarendur á Íslandi og var það hlaðin grjótvarða á ströndinni. Síðar var sett á hana ljósmerki.
Fyrsti eiginlegi vitinn var hins vegar reistur á Reykjanesi. Gerðaskóli er einn elsti starfandi barnaskóli á landinu, stofnaður 1872 af séra Sigurði B. Sívertsen, sem var prestur á Útskálum í rúmlega hálfa öld. Hann átti einnig frumkvæði að byggingu núverandi Útskálakirkju árið 1861 og tók saman Suðurnesjaannál.
Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.
Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:
- Skráningu lokið
- Skráning í vinnslu
- Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar