Bessastaðahreppur

Bessastaðahreppur

Bessastaðahreppur varð til árið 1878, ásamt Garðahreppi, þegar Álftaneshreppi var skipt í tvennt.

Hinn 17. júní 2004 var nafni hreppsins breytt í sveitarfélagið Álftanes. Sveitarfélagið Álftanes (áður Bessastaðahreppur) var sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu, á utanverðu Álftanesi.

Samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs þann 20. október 2012, fór fram íbúakosning í Garðabæ og sveitarfélaginu

Álftanes og var sameining þeirra í eitt sveitarfélag samþykkt. Hið nýja sveitarfélag heitir Garðabær en um það hafði verið samið fyrir kosningarnar og miðað við tölur Hagstofu frá 1. janúar 2012 munu íbúar sameinaðs sveitarfélags verða um 14.000 talsins.

Sameiningin tók gildi áramótin 2012/2013

Hér fyrir neðan verða skráðar þær jarðir er tilheyrðu þessum hreppi.

Ef þú hefur upplýsingar um þær sem uppá vantar, þá værum við afar þakklát ef þú vildir senda okkur þær á jord@svo.is

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar