Gaulverjabæjarhreppur

Gaulverjabæjarhreppur

Gaulverjabæjarhreppur eða Bæjarhreppur var hreppur í sunnanverðum Flóa í Árnessýslu sem markaðist af Atlantshafi í suðri, Villingaholtshreppi og Hraungerðishreppi í austri og norðri og Sveitarfélaginu Árborg í vestri.

Landslag hreppsins markast af mýri Flóans og lítið er um hóla og hæðir. Í mýrlendinu eru mýradrög og flóar. Fólksfjöldi 1. desember 2005 var 141.

Hinn 10. júní 2006 sameinuðust Flóahrepparnir þrír; Gaulverjabæjarhreppur, Villingaholtshreppur og Hraungerðishreppur og mynduðu Flóahrepp.

Skráningarstaða jarða í þessum hreppi:

  • Skráningu lokið
  • Skráning í vinnslu
  • Skráning ekki hafin - Vantar upplýsingar